Foreldrafélag Réttarholtsskóla
Almennar upplýsingar
Foreldrafélag er formlegur samstarfsvettvangur forráðamanna þar sem þeim gefst kostur á að ræða skólagöngu barna og hvaðeina sem snertir uppeldi og menntun. Félagið hefur unnið að ýmsum verkefnum, s.s. páskabingói, örnámskeiðum og fengið fyrirlesara.
Markmið
- að styðja við skólastarfið
- stuðla að velferð nemenda skólans
- efla tengsl heimilis og skóla
- hvetja til virkrar þátttöku forráðamanna í skólastarfi
- hagsmunagæsla, aðhald og eftirlit með skólastarfinu
- Stjórn foreldrafélagsins gerir sér verkefnaskrá fyrir hvert ár og er hún birt á heimasíðu skólans þegar hún er tilbúin. Nöfn og netföng verða færð inn eftir aðalfund foreldrafélagsins í haust.
Fréttir úr starfi
Hlekkur á fundina er í tölvupósti til foreldra.
Nánar